140. löggjafarþing — 90. fundur, 27. apr. 2012.
matvæli.
138. mál
Frú forseti. Ég þakka atvinnuveganefnd fyrir vel unnin störf í þessu máli. Framsóknarflokkurinn lagði á sínum tíma fram frumvarp varðandi málið og síðan kom annað sambærilegt fram.
Ég þakka nefndinni fyrir vel unnin störf í þessu efni og það er ánægjulegt að full samstaða er um að ljúka þessum málum með þessum hætti. Ég segi glaður já við þessu.