140. löggjafarþing — 106. fundur, 24. maí 2012.
fjárfestingaráætlun fyrir Ísland 2013-2015, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Forseti tekur undir þau sjónarmið hæstv. forsætisráðherra, það væri gott ef hv. þingmenn mundu fjölmenna í salinn. Það er samkomulag um skiptingu ræðutíma milli þingflokka og nú eru komnir í salinn þeir hv. þingmenn sem eru fyrstir á mælendaskrá þannig að forseti telur rétt að hefja umræðuna.