140. löggjafarþing — 110. fundur,  31. maí 2012.

sjúkratryggingar og lyfjalög.

256. mál
[12:11]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Jónína Rós Guðmundsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessar ábendingar. Við skulum bara sammælast um, eins og við höfum gjarnan gert í velferðarnefnd, að taka þetta mál upp og fylgja því eftir í haust, fylgjast með því hvernig málið er statt og skoða hvort grípa þurfti til einhverra aðgerða.