140. löggjafarþing — 111. fundur, 1. júní 2012.
tekjustofnar sveitarfélaga.
633. mál
Frú forseti. Ég styð mjög svo skynsamlega tillögu hv. þm. Róberts Marshalls en harma jafnframt að meiri hluti Alþingis treysti sér ekki til þess að telja að atvinnulíf á Íslandi eigi að vera rekið án opinberra styrkja. Ég harma það að þingmenn telji að sveitarfélög eigi að fórna hluta af tekjum sínum í að greiða niður atvinnustarfsemi. (Gripið fram í.)