vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefnda.
Forseti vill tilkynna að með bréfum, dagsettum 23. október sl., hefur forseti annars vegar óskað eftir því við fjárlaganefnd, samkvæmt 2. málslið 5. töluliðar 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sértekjur A-hluta ríkissjóðs og hins vegar hefur forseti óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit með innheimtu sekta og sakarkostnaðar.