141. löggjafarþing — 46. fundur,  4. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[20:20]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það liggur fyrir að við munum gera breytingartillögur við 3. umr. fjárlaga, það er alveg klárt. Hv. þingmaður þarf ekki að óttast að þær komi ekki fram. En hverjar þær munu verða nákvæmlega mun koma í ljós þegar þær verða lagðar fram.