141. löggjafarþing — 46. fundur, 5. des. 2012.
fjárlög 2013.
1. mál
Forseti getur upplýst að gerð hefur verið tilraun til að hafa samband við hæstv. innanríkisráðherra og velferðarráðherra en ekki er vitað til að svör hafi borist frá þeim, þeir hafa alla vega ekki birst. En hæstv. atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra er í húsi og heyrir væntanlega ræður þingmanna. Hvað varðar lengd þingfunda verður haldið áfram enn um sinn.