141. löggjafarþing — 93. fundur, 9. mars 2013.
tilkynning um skriflegt svar.
Borist hefur bréf frá velferðarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1016, um heimilisofbeldi, frá Eygló Harðardóttur. Er þess farið á leit við forseta að hann veiti ráðuneytinu frest til 12. mars nk. til að svara fyrirspurninni.