141. löggjafarþing — 108. fundur,  21. mars 2013.

lokafjárlög 2011.

271. mál
[10:59]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Í nefndaráliti frá hv. fjárlaganefnd finnst mér gott nýmæli að telja upp þá aðila sem hafa farið umfram fjárveitingar. Ég hef margoft vakið athygli á þessu og ég er mjög ánægður með þessa vinnu hv. fjárlaganefndar, auk þess sem hún gerir athugasemdir við markaða tekjustofna sem ég hef lengi talið að standist ekki stjórnarskrá.