141. löggjafarþing — 111. fundur, 26. mars 2013.
verðbréfaviðskipti.
504. mál
Virðulegi forseti. Hér er um að ræða mál sem er fyrst og fremst innleiðing á tilskipunum og því mjög tæknilegt. Það er óhætt að segja að ekki hafi komið neinar neikvæðar umsagnir frá umsagnaraðilum þannig að við mælum með því að þetta frumvarp verði samþykkt.