142. löggjafarþing — 13. fundur,  25. júní 2013.

meðferð einkamála.

2. mál
[18:20]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að Alþingi samþykki flýtimeðferð á ágreiningsmálum sem varða gengistryggð lán og verðtryggð lán. Það er nokkuð sem ég hefði mjög gjarnan viljað sjá að Alþingi hefði samþykkt fyrr, en ég fagna því að við höfum náð saman um það. Þetta eru skýr skilaboð frá Alþingi um að við viljum að það gangi hratt og vel að leysa úr þessum ágreiningsmálum.