142. löggjafarþing — 20. fundur, 3. júlí 2013.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá 2. þm. Reykv. n., Frosta Sigurjónssyni, um að hann geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Þorsteinn Magnússon. Kjörbréf Þorsteins hefur verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Þorsteinn Magnússon, 2. þm. Reykv. n., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]