143. löggjafarþing — 10. fundur,  16. okt. 2013.

þjóðfáni Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið.

86. mál
[19:28]
Horfa

Sigurjón Kjærnested (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Björk Vilhelmsdóttur fyrir andsvar sitt, hið fyrsta andsvar sem ég hef fengið hérna á Alþingi — það er gaman að því.

Ég fylgdist mjög spenntur með umræðunni áðan um skuldavandann og mér þóttu ákveðnar ræður hv. þingmanna ekki mjög málefnalegar. Ég veit ekki betur en að stjórnarsáttmálinn standi og þessi mál séu öll á dagskrá. Ég held og hef fulla trú á því að þessi mál nái fram ganga eins og stjórnarsáttmálinn segir til um.