143. löggjafarþing — 32. fundur, 4. des. 2013.
sjúkraskrár.
24. mál
Virðulegi forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um frumvarp þar sem verið er að breyta kæruleið vegna aðgengis að sjúkraskrám. Kærustigum er fækkað úr tveimur í eitt eins og tíðkast í stjórnsýslunni og verður úrskurður landlæknis endanlegur á stjórnsýslustigi. Nefndin hefur farið mjög vel yfir þetta mál og mikil vinna átti sér stað þar. Ég legg til að við styðjum þetta frumvarp frá meiri hlutanum.