143. löggjafarþing — 39. fundur, 17. des. 2013.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá hv. 8. þm. Suðvest., Ögmundi Jónassyni, um að hann geti ekki vegna dvalar erlendis gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag, 17. desember, tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Ólafur Þór Gunnarsson. 1. varamaður flokksins í kjördæminu hefur boðað forföll. Ólafur Þór Gunnarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.