143. löggjafarþing — 108. fundur,  12. maí 2014.

barnageðheilbrigðismál á Norðurlandi.

[10:49]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég vil ræða aðeins áhyggjur mínar af stöðu geðheilbrigðismála barna og unglinga á Norður- og Austurlandi en þar til fyrir um ári síðan hafði teymi barnageðlæknis og sálfræðings unnið á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Í kjölfar skipulagsbreytinga sögðu þeir upp og ekki tókst að finna varanlega lausn á því að það teymi gæti unnið áfram við sjúkrahúsið. Enginn barna- og unglingageðlæknir sótti um stöðuna sem var auglýst og í vetur hafa verið í gangi reddingar þar sem læknir og sálfræðingur hafa aðstöðu á sjúkrahúsinu fram til loka maí. En þjónustan er þó ekki með sama sniði og áður því að læknir og sálfræðingur flokkast ekki sem greiningarteymi samkvæmt skilgreiningu Sjúkratrygginga Íslands. Í því sambandi vil ég benda á grein eftir Önnu Kolbrúnu Árnadóttur í Vikudegi 8. maí þar sem hún lýsir þessum aðstöðumun skjólstæðinga ágætlega.

Flækjustig í málinu er mjög hátt og ég er ekki að gera lítið úr því en mér finnst alvarlegt að ekki hafi verið fundin ásættanleg lausn, þó ekki væri nema til nokkurra ára, þannig að þetta teymi gæti áfram veitt sömu þjónustu og verið hefur. Ýmsar hugmyndir hafa verið uppi, t.d. að teymið gæti starfað undir BUGL en með aðsetur á Akureyri, Akureyrarbær tæki yfir þjónustuna og fái það fjármagn sem henni fylgir eða teymið starfi sjálfstætt samkvæmt sérstökum samningi við Sjúkratryggingar Íslands og hafi þannig sömu aðstæður og heimildir og önnur greiningarteymi. Nú skilst mér að BUGL eigi að sinna þessari þjónustu eða hluta af henni með því að fara norður tvisvar í mánuði en þó ekki í greiningarvinnuna ef ég skil rétt.

Það er mjög erfitt að fá sérfræðinga út á land. Þess vegna finnst mér mjög nauðsynlegt að allir kostir séu skoðaðir í þessu máli og við leggjum einhvern veginn ágreining til hliðar og finnum lausn. Ég held að það sé alveg ljóst í þessu tilfelli að sérsmíða þarf lausnina, það getur þurft að breyta reglugerðum, búa til nýjar reglugerðir eða hugsa út fyrir kassann, en þá gerum við það bara. Við berum ábyrgð á því að börn og unglingar fái þessa bráðnauðsynlegu þjónustu.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort kannað hafi verið að það teymi sem nú er til staðar á Akureyri gæti starfað undir öðrum hatti svo sem undir BUGL eða Akureyrarbæ eða sjálfstætt með sambærilegar heimildir og aðstoð og þau greiningarteymi sem nú þegar eru starfandi, það er mjög mikilvægt. Og hvort ráðherra telji að allar leiðir hafi verið kannaðar og hvort staðan nú sé ásættanleg.