143. löggjafarþing — 109. fundur,  13. maí 2014.

varamaður tekur þingsæti.

[11:32]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins, Sigrúnu Magnúsdóttur, um að Eygló Harðardóttir, hv. 2. þm. Suðvest., geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana Ólöf Pálína Úlfarsdóttir. Kjörbréf Ólafar Pálínu Úlfarsdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki tekið áður sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Ólöf Pálína Úlfarsdóttir, 2. þm. Suðvest., undirskrifaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]