144. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2014.

nauðungarsala.

7. mál
[16:30]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Unnur Brá Konráðsdóttir) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er ekki sú sem hér stendur sem annast birtinguna, en engu að síður geri ég ráð fyrir því að því verði hraðað eins og kostur er þannig að birting náist í tæka tíð. Til þess erum við að gera þetta svona hratt með dyggri aðstoð allra þeirra þingmanna sem að málinu koma.