144. löggjafarþing — 67. fundur, 17. feb. 2015.
handtaka og afhending manna til og frá Íslandi á grundvelli handtökuskipunar.
463. mál
Virðulegi forseti. Þetta er svolítið þvælið, ég verð nú að bara að gangast við því, í ræðunni. En það er þannig að það má ekki framselja íslenska ríkisborgara að lögum. Það er alveg klárt og það er ekki verið að breyta því í þessu. Það er mjög mikilvægt að það komi fram.