144. löggjafarþing — 69. fundur,  24. feb. 2015.

raforkulög.

305. mál
[23:30]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti hefur áður tjáð þá skoðun sína að eðlilegt sé að ljúka 2. umr. og málið gangi síðan til atvinnuveganefndar eins og gerð hefur verið tillaga um. Nefnd getur þá að lokinni umfjöllun sinni gefið út framhaldsnefndarálit þar sem birt er meirihlutaálit umhverfisnefndar sem hv. þingmenn hafa verið að vísa til. Það er engin ástæða að mati forseta til að gera sérstakt hlé á umræðunni nú til að málið komi til nefndar áður en umræðunni lýkur.