144. löggjafarþing — 76. fundur, 3. mars 2015.
örnefni.
403. mál
Virðulegi forseti. Mig langar við þetta tækifæri til að fagna því sérstaklega að við séum að afgreiða frumvarp um örnefni sem hefur verið lengi í vinnslu. Það hefur áður verið lagt fram á þinginu án þess að það hlyti fullnaðarafgreiðslu. Ég vil nota tækifærið og þakka öllum þeim sem tekið hafa þátt í umræðu um málið og komu að vinnunni í allsherjar- og menntamálanefnd.