144. löggjafarþing — 86. fundur,  26. mars 2015.

samningur milli Grænlands og Íslands um stjórnun rækjuveiða á Dohrnbanka.

610. mál
[13:33]
Horfa

utanríkisráðherra (Gunnar Bragi Sveinsson) (F):

Herra forseti. Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Grænlands og Íslands um stjórnun rækjuveiða á Dohrnbanka sem undirritaður var í Reykjavík 29. mars 2014.

Hinn 29. mars 2014 var undirritaður í Reykjavík árlegur samstarfssamningur milli Íslands og Grænlands á sviði fiskveiða. Þetta er annar samningur slíkrar gerðar og er til marks um að samvinna Íslands við næsta nágranna sinn í vestri er stöðugt að aukast.

Við það tilefni var undirritaður samningur þjóðanna um stjórnun rækjuveiða á Dohrnbanka en það er sameiginlegur stofn á svæðinu norður og vestur af Vestfjörðum.

Ekki náðist samkomulag um hlutfallslega skiptingu þessa stofns á milli þjóðanna en nýjasta vísindaráðgjöf, sem gefin er út af Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðistofnuninni (NAFO), gerir ráð fyrir 2.000 tonna heildarafla á árinu 2014. Þar til að slíkt samkomulag kemst á hefur verið ákveðið að þjóðirnar fái gagnkvæman aðgang að lögsögu hvor annarrar til veiða á takmörkuðu magni. Til að byrja með gerir samningurinn ráð fyrir því að Grænlendingar geti veitt 375 tonn af rækju Íslandsmegin við lögsögumörkin og Íslendingar að sama skapi veitt 375 tonn Grænlandsmegin.

Veiðar Grænlandsmegin munu lúta grænlenskum reglum en veiðar í íslenskri lögsögu lúta íslenskum reglum. Samningurinn er ótímabundinn og öðlast fyrst gildi 30 dögum eftir að báðir aðilar hafa staðfest hann.

Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögunni vísað til hv. utanríkismálanefndar.