144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áframhald umræðu um rammaáætlun.

[10:54]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Þetta er svo mikið rugl. Ég krefst þess að forseti fresti hér fundi og að boðað verði til fundar meðal formanna flokkanna til þess að fara yfir dagskrána. Það er ekki í boði, það er ekki boðlegt að hér séu viðhöfð svona vinnubrögð þar sem við vitum ekki hvað verður á dagskrá. Hvar er stöðugleikaskatturinn? Hvar eru hin tvö frumvörpin, sem eru enn í fjármálaráðuneytinu, varðandi húsnæðismál þar sem er neyð? Á meðan erum við bara að rugla. Hvað finnst þingmönnum í ríkisstjórnarflokkunum um þetta rugl? Af hverju er verið að setja hér mál á dagskrá sem hleypir öllu í uppnám (Forseti hringir.) þegar við eigum að vera að finna sameiginlegar lausnir? Þetta er rugl.