dagskrá næsta fundar.
Eins og tilkynnt var fyrr á þessum fundi hefur forseta borist dagskrártillaga sem er svohljóðandi:
„Við undirrituð gerum það að tillögu okkar í samræmi við 1. mgr. 77. gr. þingskapalaga að dagskrá næsta fundar verði svohljóðandi:
1. Óundirbúnar fyrirspurnir.
2. Staðan á vinnumarkaði, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
3. Sérstakar umræður um verðtryggingu. Málshefjandi er Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og til andsvara verður forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
4. Sérstakar umræður um fyrirhugaðar skattbreytingar og jöfnuð í samfélaginu. Málshefjandi er Steingrímur J. Sigfússon og til andsvara verður fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarni Benediktsson.
5. Sérstakar umræður um öryggi sjúklinga í kjölfar fjöldauppsagna heilbrigðisstarfsfólks. Málshefjandi er Jón Þór Ólafsson og til andsvara verður heilbrigðisráðherra Kristján Þór Júlíusson.
Við óskum eftir því að þessi tillaga verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“
Undir þetta bréf rita Katrín Júlíusdóttir, Jón Þór Ólafsson og Lilja Rafney Magnúsdóttir.