stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Nú flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og fram mun fara umræða um hana sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.
Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi: Framsóknarflokkur, Samfylkingin, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Sjálfstæðisflokkur, Björt framtíð og Píratar.
Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í fyrstu umferð, í annarri Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, 3. þm. Norðvest.
Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvest., Katrín Júlíusdóttir, 11. þm. Suðvest., í annarri og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 3. þm. Reykv. s., í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, í annarri Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 9. þm. Norðaust., og í þriðju umferð Steinunn Þóra Árnadóttir, 8. þm. Reykv. n.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Jón Gunnarsson, 6. þm. Suðvest., í annarri umferð og Sigríður Á. Andersen, 7. þm. Reykv. s., í þriðju umferð.
Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Óttarr Proppé, 11. þm. Reykv. s., í annarri Brynhildur Pétursdóttir, 10. þm. Norðaust., og í þriðju umferð Guðmundur Steingrímsson, 7. þm. Suðvest.
Fyrir Pírata tala Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, Ásta Guðrún Helgadóttir, 10. þm. Reykv. s., í annarri umferð og Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykv. n., í þriðju.