145. löggjafarþing — 23. fundur, 20. okt. 2015.
tilkynning um skrifleg svör.
Borist hefur bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 165, um umhverfissjónarmið við opinber innkaup, frá Svandísi Svavarsdóttur.
Einnig hefur borist bréf frá velferðarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 152, um rétt foreldra til stuðnings vegna missis barns, frá Brynhildi S. Björnsdóttur.