145. löggjafarþing — 93. fundur,  7. apr. 2016.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:34]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hafa fjögur bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 747, um rannsóknir í ferðaþjónustu, frá Vilhjálmi Árnasyni, fyrirspurn á þskj. 827, um kennitöluflakk, frá Brynhildi Pétursdóttur, fyrirspurn á þskj. 931, um nýliðun í landbúnaði, frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur, og fyrirspurn á þskj. 940, um umhverfisáhrif búvörusamninga, frá Svandísi Svavarsdóttur.

Einnig hafa borist tvö bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 974, um lífeyrisskuldbindingar ríkis og sveitarfélaga, og fyrirspurn á þskj. 975, um lífeyrisskuldbindingar heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni, báðar frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.