145. löggjafarþing — 133. fundur, 16. ág. 2016.
landlæknir og lýðheilsa.
397. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Valgerði Bjarnadóttur andsvarið en ég get því miður ekki svarað spurningunni þar sem ég tók aðeins þátt í hluta af umfjöllun nefndarinnar um málið og er hér, eins og fram kom, í forföllum framsögumanns sem er Ásmundur Friðriksson. Ég vonast til að það mætti þá upplýsa um þetta, til að mynda þegar atkvæðagreiðsla fer fram.