145. löggjafarþing — 164. fundur, 5. okt. 2016.
áætlanir um þinglok.
Þótt forseti skipti sér alla jafna ekki af daglegum störfum nefnda mun hann í ljósi þeirra upplýsinga sem hér hafa verið reiddar fram um mætingu á nefndafundum reyna að stuðla að því að eðlileg mæting sé á nefndafundi. Það er auðvitað augljóst mál að ekki getur gengið að það sé slík mæting á nefndafundi að það standi nefndastarfinu fyrir þrifum. Forseti mun hafa atbeina að því.