146. löggjafarþing — 8. fundur,  20. des. 2016.

kjararáð.

7. mál
[16:09]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Ég greiði atkvæði gegn því að þessi tillaga haldist óbreytt, þ.e. að 2. gr. haldist óbreytt, þar sem hún gerir ekki ráð fyrir því að nokkrar kröfur verði gerðar til þeirra einstaklinga sem skipa kjararáð. Við Píratar munum væntanlega leggja til aðra breytingartillögu þess efnis sem mun rúma fleiri sjónarmið um að hægt sé að koma að breiðari aðkomu ráðsmanna. Að óbreyttu greiðum við atkvæði gegn þessari tillögu.