146. löggjafarþing — 11. fundur,  22. des. 2016.

útlendingar.

29. mál
[11:47]
Horfa

Flm. (Þórunn Egilsdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir þessa athugasemd. Það sem við erum að gera er í raun að framlengja vinnulag sem verið hefur. Núna er verið að vinsa úr þær umsóknir sem sannarlega eru tilhæfulausar. Á þeim grunni verður vinnan markvissari, betri og skilvirkari. Við erum einungis að framlengja þessi vinnubrögð og festa í sessi.