146. löggjafarþing — 15. fundur, 24. jan. 2017.
framhaldsfundir Alþingis.
Forseti Íslands gjörir kunnugt:
„Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 24. janúar 2017 kl. 13.30.
Gjört í Reykjavík, 20. janúar 2017.
Guðni Th. Jóhannesson.
_________________
Bjarni Benediktsson.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“
Ég býð hæstv. forseta og hv. alþingismenn velkomna til starfa að nýju.