146. löggjafarþing — 28. fundur,  9. feb. 2017.

farþegaflutningar og farmflutningar.

128. mál
[12:02]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að taka undir árnaðaróskir til virðulegs forseta og óska henni velgengni í störfum hér.

Varðandi 9. gr. sem hv. þingmaður spyr um þá er það ákvæði í þessum lagabálki í fyllilegu samræmi við það sem er í gildandi lögum. Ég get ekki lagt mat á það hér í andsvari hvort sú hugmynd geti talist skynsamleg ráðstöfun sem hv. þingmaður rekur hérna, en mér finnst sjálfsagt að nefndin skoði það vel í málsmeðferðinni í þinginu. Komi fram óskir um það og náist um það einhver samstaða mun ráðherra ekki vera í einhverri andstöðu við slíkt, en þetta þarf bara að fá sína vinnu í málsmeðferðinni hér.