146. löggjafarþing — 31. fundur,  23. feb. 2017.

virðisaukaskattur af íþrótta- og æskulýðsstarfi.

[11:10]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Benedikt Jóhannesson) (V):

Virðulegi forseti. Ég ítreka að ég er algjörlega sammála hv. þingmanni um mikilvægi íþrótta- og æskulýðsstarfs. Ég hygg að fátt gerum við betra en að efla það einmitt. Ég hef á liðnum árum tekið þátt í slíku starfi með það fyrir augum að reyna að efla það og ég sé að það tekst vel til. Ég get alveg tekið undir með þingmanninum að ég hlakka líka til þess að sjá niðurstöðurnar og það væri ekki lakara ef það hjálpaði hæstv. ríkisstjórninni núna eins og það mun hjálpa æskulýð landsins.