146. löggjafarþing — 33. fundur,  27. feb. 2017.

endurskoðun samgönguáætlunar.

92. mál
[19:00]
Horfa

Forseti (Jón Þór Ólafsson):

Forseti vill beina því til hv. þingmanna og hæstv. ráðherra að virða tímamörk. Metið í dag er held ég þessar 40 sekúndur fram yfir. Það er svolítið mikið. Ef fólk heima er orðið þreytt, skiljanlega, á að vera með þetta glamur í eyrunum þá er það á ábyrgð þeirra þingmanna sem tala umfram 15 sekúndur, þá heldur glamrið stanslaust áfram og hækkar.