146. löggjafarþing — 37. fundur,  1. mars 2017.

tekjuskattur.

86. mál
[18:47]
Horfa

Flm. (Vilhjálmur Bjarnason) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum, um gengishagnað. Í frumvarpinu er lagt til að fella niður nánar tilgreinda liði í 8. gr. laganna.

Þetta frumvarp var flutt á 144. og 145. löggjafarþingi, en kom ekki til umræðu.

Það ákvæði sem hér er lagt til að falli brott kom í lög um tekjuskatt með lögum nr. 165/2010. Ákvæðið gengur þvert á hugmynd um tekjur þar sem tekjur eru eignaauki en ekki vegna leiðréttingar við aðlögun í verðmætamælingum. Gengismunur er því hvorki tekjur né gjöld. Eign sem er mæld í erlendum gjaldmiðli, í þessu tilfelli inneign á bankareikningi, verður ekki fyrir eignaauka eða kaupmáttarauka við að gengi íslenskrar krónu lækkar gagnvart þeirri mynt sem innstæðan er varðveitt í. Samkvæmt hugsun ákvæðisins eins og það var lögtekið árið 2010 ætti að færa til gjalda verðmætarýrnun íslenskra eigna vegna gengislækkunar krónunnar til að ná heildstæðri hugsun í ákvæðið.

Til að útskýra þetta með dæmi þá er einn bandaríkjadalur virði eins bandaríkjadals að kaupmætti hvert svo sem gengi bandaríkjadals er gagnvart íslenskri krónu á hverjum tíma.

Af framansögðu er ljóst að rétt er að fella hið tiltekna ákvæði út við útreikning og álagningu fjármagnstekjuskatts.

Í þessari breytingu virðist menn ekki alveg hafa haft fullan skilning á tekjuhugtaki heldur gripið til þess ráðs að skattleggja allt sem tekur breytingum vegna verðbólgu. Gengisbreytingar íslensku krónunnar eru yfirleitt vegna afleiðinga verðbólgu. Hér er verið að reyna að leiðrétta mjög brenglaða hugsun sem var hér á sveimi árið 2010.

Bæði þessi frumvörp sem ég hef mælt nú fyrir varða breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003.

Ég legg til að frumvarp á þskj. 142, 85. mál, og frumvarp á þskj. 143, 86. mál, gangi bæði til hv. efnahags- og viðskiptanefndar til tilhlýðilegrar umfjöllunar.

Ég hef lokið máli mínu, virðulegi forseti.