146. löggjafarþing — 51. fundur, 30. mars 2017.
fjármálastefna 2017--2022.
66. mál
Virðulegi forseti. Mér er spurn, hv. þm. Ari Trausti Guðmundsson: Hver er skoðun þín á því að forsendur frumvarpsins gangi út á að hagkerfi Íslands sé jafn stöðugt og ríkjandi og staðbundin vindabelti í kringum miðbaug þegar raunveruleikinn er nær íslenskri veðráttu?