varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá 10. þm. Suðvest., Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, og 5. þm. Suðurk., Vilhjálmi Árnasyni, um að þau geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi fyrir þau 1. varamaður á lista Pírata í Suðvesturkjördæmi, Andri Þór Sturluson, og 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, Kristín Traustadóttir.
Andri Þór Sturluson og Kristín Traustadóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru þau boðin velkomin til starfa að nýju.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um að Katrín Jakobsdóttir, 2. þm. Reykv. n., geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Orri Páll Jóhannsson. 1. varamaður á lista í kjördæminu hefur boðað forföll.
Orri Páll Jóhannsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.