146. löggjafarþing — 63. fundur,  4. maí 2017.

farþegaflutningar og farmflutningar.

128. mál
[12:26]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Samfylkingin fagnar þessu frumvarpi. Þótt við eigum ekki fasta aðild að umhverfis- og samgöngunefnd hljótum við að þakka þeim sem þar sitja fyrir að hafa unnið vel að málinu. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál fyrir landsbyggðina og allt landið, mikilvægt fyrir landshlutasamtökin sem hafa gert samning við Vegagerðina um almenningssamgöngur. Í raun má segja að þetta sé eitt skrefið í að samningurinn sé uppfylltur vegna þess að þessi mál hafa verið í uppnámi. Ég þakka bara fyrir.