146. löggjafarþing — 63. fundur, 4. maí 2017.
utanríkis- og alþjóðamál.
480. mál
Ég þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir, þetta er bara orðið samtal. En hvað varðar Rússland: Eins og ég nefndi, þetta opinbera ástarsamband, það er mjög mikilvægt að við þrýstum á að fram fari rannsókn. Ég tel, ég tala bara opinskátt hérna, að við séum í mjög mikilli hættu hvað það varðar að afneita þeim hlutum sem eru að gerast þar. Það er bara heimurinn, við, og fordæmi okkar sem mun ýta áfram þróuninni þar.