146. löggjafarþing — 64. fundur,  9. maí 2017.

skógar og skógrækt.

407. mál
[17:36]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Björt Ólafsdóttir) (Bf) (andsvar):

Afsakið, hæstv. forseti, ég var svo sein að biðja um andsvar. Ég var spurð um hvað mér fyndist um hugmyndir hv. þingmanns um auðlindastofnun. Ég svara því stutt og laggott af því að ég lofaði átta ára syni mínum að horfa með honum á Eurovision, ég vona að það gangi eftir. En mér líst bara ágætlega á þær hugmyndir og er að pæla í þeim.