varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá 6. þm. Suðurk., Ara Trausta Guðmundssyni, og 10. þm. Reykv. n., Andrési Inga Jónssyni, um að þeir geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi fyrir þá 2. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Suðurkjördæmi, Daníel E. Arnarsson, og 1. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi norður, Iðunn Garðarsdóttir. Kjörbréf þeirra hafa þegar verið rannsökuð og samþykkt en þau hafa ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Daníel E. Arnarsson, 6. þm. Suðurk., og Iðunn Garðarsdóttir, 10. þm. Reykv. n., undirrituðu drengskaparheit að stjórnarskránni.]