varamenn taka þingsæti.
Daníel E. Arnarsson og Iðunn Garðarsdóttir hafa undirskrifað drengskaparheit að stjórnarskránni og eru boðin velkomin til starfa á Alþingi.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs þar sem kemur fram að 3. þm. Norðaust., Steingrímur J. Sigfússon, geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Ingibjörg Þórðardóttir. 1. varamaður á lista hefur boðað forföll.
Ingibjörg hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.