146. löggjafarþing — 68. fundur, 22. maí 2017.
afgreiðsla meiri hluta nefndar á áfengisfrumvarpinu.
Hæstv. forseti. Ég vil taka undir með félögum mínum og gagnrýna harðlega þessi vinnubrögð, þá meðferð sem svokallað áfengisfrumvarp hefur fengið hjá þinginu. Það gengur ekki að svo yfirgripsmiklar breytingar séu gerðar á málinu og umsagnar aðilar ekki kallaðir að borðinu að nýju. Það er algjörlega forkastanlegt og ekki til sóma fyrir hæstv. Alþingis.