146. löggjafarþing — 79. fundur, 1. júní 2017.
tillögur dómsmálaráðherra um skipun dómara við Landsrétt.
622. mál
Kæru Íslendingar, þingheimur. Allir dómarar sem eru á þessum lista eru hæfir. Hafið það í huga. Með þessu er ekki verið að rýra neitt traust á dómstólinn sjálfan. Það verður hæft fólk þar. Vantraustið er á vinnubrögð stjórnarinnar. Megi stjórnin bera eingöngu ábyrgð á þessari málsmeðferð og hversu illa er að þessu staðið.