148. löggjafarþing — 24. fundur,  8. feb. 2018.

almannatryggingar.

97. mál
[17:55]
Horfa

Flm. (Silja Dögg Gunnarsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna og stuðninginn við málið. Ég hef í sjálfu sér enga sérstaka spurningu um ræðu þingmannsins en langar að undirstrika það sem þingmaðurinn sagði, þarna er ákveðið atriði sem ég tel mjög mikilvægt að hv. velferðarnefnd taki til skoðunar þegar hún tekur frumvarpið til umfjöllunar. Ég vil leggja ríka áherslu á það.