148. löggjafarþing — 41. fundur,  20. mars 2018.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 107/2017 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn.

337. mál
[20:14]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Ari Trausti Guðmundsson) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 107/2017, um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn.

Utanríkismálanefnd hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Pétur Gunnarsson frá utanríkisráðuneyti og Kjartan Ingvarsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 107/2017, nánar tiltekið frá 13. júní 2017. Þar er verið að fastsetja niðurstöður um bestu fáanlegu tækni, eða BAT eins og það heitir á ensku, „Best Available Technology“, samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins vegna iðnaðar með járnlausan málm.

Sex mánaða frestur samkvæmt EES-samningnum til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 13. desember 2017. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.

Um tilganginn segir að tilskipun 2010/75/ESB um losun í iðnaði feli í sér endurútgáfu og uppfærslu á sjö EES-reglugerðum um samþættar mengunarvarnir í þeim tilgangi að auka skýrleika reglnanna. Tilskipunin gengur lengra en eldri tilskipanir.

Markmið tilskipunar 2010/75/ESB er að koma í veg fyrir og takmarka mengun frá tiltekinni starfsemi. Helstu nýmæli snúa að ákvörðunum um bestu aðgengilegu tækni, eins og áður kom fram (BAT), og gildi þeirra með tilkomu svokallaðra niðurstaðna um bestu aðgengilegu tækni (BAT Conclusions – BATC). Þau fela það í sér að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun setja fram, í samráði við aðildarríkin og hagsmunaaðila, viðmið varðandi tiltekna starfsemi. Þessi viðmið verða sett sem sérstakar gerðir framkvæmdastjórnarinnar.

Á Íslandi falla þrjú álver undir ákvörðunina. Að minnsta kosti eitt fyrirtæki sem vinnur að endurvinnslu álgjalls og ein verksmiðja sem framleiðir kísiljárn (járnblendi). Auk þess falla undir ákvörðunina tvær verksmiðjur sem hafið hafa framleiðslu samkvæmt starfsleyfi Umhverfisstofnunar og framleiða hrákísil, auk einnar verksmiðju til viðbótar sem sótt hefur um starfsleyfi til slíkrar starfsemi.

Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1032 kallar sem slík ekki á lagabreytingar. Móðurgerðin sem ákvörðunin byggist á, þ.e. tilskipun 2010/75/ESB, kallaði aftur á móti á lagabreytingu. Umhverfis- og auðlindaráðherra lagði fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir á 146. löggjafarþingi sem innleiddi m.a. tilskipun 2010/75/ESB í íslenska löggjöf. Lögin tóku gildi 1. júlí 2017.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Hv. þingmenn Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Bryndís Haraldsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita þar með auk mín hv. þingmenn Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Logi Einarsson, Sigríður María Egilsdóttir, Smári McCarthy og Stefán Vagn Stefánsson.

Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu.