148. löggjafarþing — 43. fundur, 22. mars 2018.
kosningar til sveitarstjórna.
40. mál
Herra forseti. Ég er kominn hingað til að gera athugasemd við þessa atkvæðagreiðslu vegna þess að breytingartillagan á þskj. 566 gengur lengra og að mínu áliti hefði átt að bera hana upp fyrr. Ég beini því til forseta að þetta verði lagfært.