Frestun á skriflegum svörum.
Forseti vill tilkynna að borist hafa tvö bréf frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 432, um starfsmenn ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra, frá Þorsteini Sæmundssyni, og á þskj. 383, um ráðherrabíla og bílstjóra, frá Birni Leví Gunnarssyni.
Einnig hefur borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 416, um starfsmenn opinberra hlutafélaga, frá Þorsteini Sæmundssyni.