148. löggjafarþing — 46. fundur, 10. apr. 2018.
heilbrigðisþjónusta o.fl.
426. mál
Virðulegi forseti. Vinna er hafin í ráðuneytinu við að skoða þennan þátt og ég lít svo á að hv. þingmaður, sem er varaformaður velferðarnefndar, sé hér með að óska eftir því að nefndin verði upplýst um þá vinnu eftir því sem henni vindur fram. Þeirri ósk er hér með komið á framfæri við ráðuneyti velferðarmála.